Markaðsdeildin · Kosningaprófið 2026 · Lokið
Kosningaprófið
Kosningarnar 16. maí 2026 eru afstaðnar. Hér getur þú borið saman svör þátttakenda í prófinu við endanlegar lokatölur kosninganna.
Eftirskrift
Verkefnið í tölum
Framboðin
Fjögur framboð í kjöri
Allir frambjóðendur svöruðu sömu 37 spurningunum á sínum eigin forsendum.
Framsóknarflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn

Samfylkingin
Miðflokkurinn
Hlutlægni
Um prófið
Prófið er unnið af Markaðsdeildinni, óháðri markaðsstofu án pólitískra tengsla.
Lesa um aðferðafræði og fyrirvara
Aðstandendur prófsins
Kosningaprófið er hannað og þróað af Markaðsdeildinni, sem er markaðs- og hugbúnaðarstofan í Fjarðabyggð. Stofan er óháð og hefur engin pólitísk tengsl.
Uppruni spurninganna
Spurningarnar byggja á ábendingum frá íbúum Fjarðabyggðar og endurspegla þau mál sem hafa verið hvað mest til umræðu í samfélaginu. Þær eru settar fram á hlutlægan hátt og endurspegla hvorki skoðanir né hagsmuni Markaðsdeildinnar. Allar 37 spurningarnar voru kynntar framboðunum áður en prófið fór í loftið.
Svör frambjóðenda
Frambjóðendur skiluðu svörum sínum í gegnum lokað vefviðmót sem hannað var sérstaklega fyrir prófið. Svörin birtast nákvæmlega eins og þau voru veitt. Markaðsdeildin hvorki ritstýrir svörunum né túlkar þau.
Útreikningur á samleið
Samleið er reiknuð út með veginni tölfræðiaðferð. Niðurstöðurnar birtast alltaf í röð eftir því hversu mikla samleið framboðin eiga með notandanum, og er röðunin því aldrei fyrirfram ákveðin.
Persónuvernd
Prófið safnar engum persónugreinanlegum upplýsingum. Bakgrunnsupplýsingar á borð við kyn, aldur og búsetu eru eingöngu nýttar til tölfræðigreiningar og verða aldrei raktar til þín. Til að mæla notkun vefsins notum við Plausible Analytics. Sú greining notar ekki vafrakökur, geymir engar IP-tölur og auðkennir ekki einstaka notendur. Öll gagnavinnsla er í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.